Reglur og almennar upplýsingar í kvikmyndahúsum Sambíóanna
Reglur í kvikmyndahúsunum
Reykingar og vímugjafir
Reykingar, þar með talið notkun rafrettna, eru stranglega bannaðar inni í kvikmyndahúsunum. Þeir sem vilja reykja skulu gera það utandyra.
Upptökur og myndavélar
Notkun myndavéla og upptökubúnaðar er óheimil nema með skriflegu leyfi umsjónarmanna.
Öryggi og aðstaða
-
Notkun hjólabretta, reiðhjóla og skauta er bönnuð inni í húsunum.
-
Gestum er óheimilt að koma með gæludýr.
-
Ekki má koma með stórar töskur eða aðra fyrirferðarmikla muni sem geta hindrað för milli sæta eða skapað hættu ef rýma þarf salinn.
Matur og drykkur
Ekki er leyfilegt að neyta matar, drykkja eða sælgætis sem keypt hefur verið utan kvikmyndahússins.
Miðar og sýningar
-
Gestir verða að framvísa gildum miða til að fá aðgang að sýningu.
-
Miðinn gildir aðeins fyrir þá sýningu sem hann er gefinn út fyrir.
Hegðun á sýningum
-
Truflun á sýningu, til dæmis með notkun farsíma, er ekki leyfð.
-
Vísvitandi skemmdarverk, svo sem að setja fætur upp á sæti eða nota liti og úðabrúsa, eru stranglega bönnuð.
-
Sambíóin áskilja sér rétt til að krefja um skaðabætur vegna skemmdarverka.
Aldurstakmörk á kvikmyndum
Sambíóin fylgja lögum nr. 62/2006 um kvikmyndaskoðun.
Samkvæmt 2. grein laganna eru kvikmyndahús skyldug til að framfylgja þeim aldurstakmörkunum sem sett eru á kvikmyndir.
Nánari upplýsingar má finna á vef Kvikmyndaskoðunar:
www.kvikmyndaskodun.is/aldursmerkingar
Réttindi starfsfólks
Starfsfólk kvikmyndahúsa hefur heimild til að grípa til eftirfarandi aðgerða í þágu öryggis og ánægjulegrar upplifunar allra gesta:
-
Aldursstaðfesting og afslættir
Starfsfólk má óska eftir skilríkjum til að staðfesta aldur vegna aldurstakmarkana eða afslátta. -
Aldurstakmarkanir
Heimilt er að neita að selja miða ef kaupandi uppfyllir ekki lögbundin aldurstakmörk. -
Óæskilegt ástand gesta
Starfsfólk má neita að selja miða til einstaklinga sem eru sýnilega ölvaðir, undir áhrifum vímuefna eða líklegir til að valda truflun. -
Hreinlæti og klæðaburður
Miðasölu má synja þeim sem eru illa klæddir eða óþrifalegir og geta þar með truflað upplifun annarra gesta. -
Brottvísun vegna brota
Gestum sem trufla sýningu eða brjóta reglur kvikmyndahússins getur verið vísað úr húsi – án endurgreiðslu. Alvarleg tilvik geta verið tilkynnt til lögreglu. -
Svindl eða misnotkun
Ef reynt er að svindla á starfsfólki má ógilda miða og vísa viðkomandi úr húsi. -
Endurtekin brot
Starfsfólk má neita að selja miða til einstaklinga sem áður hafa brotið reglur kvikmyndahússins.
Hjólastólanotendur
Gestum í hjólastól er heimilt að fylgjast með sýningu án greiðslu ef þeir sitja í hjólastólnum á tilgreindum stað í salnum. Fylgdarmaður greiðir fullt miðaverð.
Tilmæli til gesta
-
Forðist að koma með ungbörn
Mælt er gegn því að koma með kornabörn í sýningar. Hátt hljóðstig getur valdið þeim vanlíðan og truflun fyrir aðra gesti. -
Leitið aðstoðar við truflun
Ef einhver truflar sýninguna, vinsamlega leitið tafarlaust til starfsmanna. -
Snyrtimennska í sölum
Gangið snyrtilega um salinn og hendið rusli í tilheyrandi ruslafötur. -
Mætið tímanlega
Komið tímanlega til að forðast truflun eftir að sýning hefst.
Viðskiptaviðmið Sambíóanna
Endurgreiðslur og breytingar á miðum
-
Miðar eru ekki endurgreiddir ef viðskiptavinur kemst ekki á sýningu.
-
Hægt er að færa miða yfir á aðra sýningu, að því tilskildu að breytingin sé gerð sama dag og áður en sýning hefst.
Falli sýning niður
Ef kvikmyndasýning fellur niður, eiga viðskiptavinir með gildan miða rétt á annaðhvort:
-
tveimur miðum á sambærilega sýningu, eða
-
fullri endurgreiðslu.
Óánægja með kvikmynd
Miðar eru ekki endurgreiddir vegna óánægju með innihald eða gæði kvikmyndar.
Persónuvernd og greiðslur
Persónuvernd og markaðsefni
-
Sambíóin afhenda aldrei netföng viðskiptavina til þriðja aðila.
-
Kynningarefni er aðeins sent þeim sem sérstaklega haka við samþykki við skráningu á vefnum.
Örugg kortaafgreiðsla
-
Vefur Sambíóanna geymir ekki kortaupplýsingar.
-
Allar greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt Valitor.
Almennar upplýsingar
Aðferðir til að nálgast miða
Viðskiptavinir geta nálgast miðann með eftirfarandi leiðum:
-
Prenta hann út heima.
-
Opna PDF-skjal í síma og sýna við inngang.
-
Sækja miðann í tölvupósti í snjallsíma.
-
Fá hann prentaðan út í miðasölu eða sjoppu.
Opnunartímar
Miðasölur Sambíóanna opna 30 mínútum fyrir fyrstu sýningu hvers dags.
Hópabíó og afmæli
Hægt er að bóka hópasýningar eða afmælisviðburði: Smelltu hér til að bóka.
VIP Lúxussalur – Álfabakki
-
Númeruð sæti
-
Ótakmarkað gos og popp innifalið
-
Engin hlé á sýningum
Kaup á miðum á netinu
Viðskiptasíða
-
Viðskiptavinir geta nálgast miða og kvittanir á „Þinni síðu“ á sambio.is
-
Hægt er að kaupa miða með eða án skráningar
-
Greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt Valitor
-
Miðar sendast í tölvupósti og birtast einnig á notendasvæðinu
Athugið: Aðgöngumiði og kvittun eru tvö aðskilin skjöl. Aðgöngumiða þarf að framvísa við inngang.
Afslættir
-
Afslættir fyrir eldri borgara og öryrkja eru veittir í miðasölum gegn framvísun skilríkja.
-
Ekki hægt að nýta afslætti við netkaup.
-
Gildir ekki í lúxussali, beinar útsendingar o.þ.h.
Persónuverndarstefna Sambíóanna
Sambíóin fara eftir lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Upplýsingar sem safnað er við t.d. pöntun, umsóknir eða beiðnir eru varðveittar á öruggan hátt og ekki afhentar þriðja aðila nema með samþykki eða lögboðinni beiðni.
Afskráning persónuupplýsinga:
Netfang: unregister@samfilm.is
XML og RSS
XML þjónusta Sambíóanna:
http://www.sambio.is/xml
Rekstraraðili vefsins
Sam-félagið ehf
Álfabakka 8, 109 Reykjavík
Sími: 575-8900